já það er allveg sjúklegt
hvað fólki dettur í hug.....hérna er dæmi um það hvað ein
bitur kona er mjög BITUR:
Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum
YOU ARE WHAT YOU
EAT og kemst þá að því að matarræðið er
snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég samt bara
áfram að éta og fitna meira.
Þá fer ég í megrunarkeppninaTHE
BIGGEST LOSER og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til
að fá final touchið á þetta þá fer ég í THE SWAN og fer í nokkrar
lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en í lokaþættinum þá
kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig að þetta
hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í EXTREME MAKEOVER og læt taka mig
ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr
líkamanum.
Þá er ég heldur betur orðin flott og fer
íAMERICAN NEXT TOP
MODEL þáttinn og geri gott þar.. en tapa. Nú
er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan kall nebblega.
Best að fara í
BACHELORETTE og ná mér í einn ríkan og
myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið,
vantar einhverja spennu í sambandið, þannig að við förum í
Temptation
Island... en þar endar það með að við hættum
saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara að vera
dáldið sjálfstæð og verða rík..
Þannig að ég fer í SURVIVOR, þrauka alveg í 36 daga en lendi
í 3. sæti ohhh ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim,
alveg í rusli. En ég er ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og
sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar sem mig langar aftur í
kærasta, þá skrái ég mig í DJÚPU
LAUGINA.. næ mér þar í einhvern lúða sem býr í
ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En það er allt í
lagi, ég hringi bara í vini mína íQUEER EYE FOR THE STRAIGHT GUY og þeir
koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann,
rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að
giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.
Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og
vinnum svo ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á
skemmtiferðaskipinu þá verð ég ólétt.. eignast svo krakka og eftir
2 ár er hann farinn að stjórna öllu, þannig að ég hringi í
THE NANNY og fæ hana
til að kenna okkur að ala upp krakkann og láta hann ekki ráða
öllu.
Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar
vin minn Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn
ALLT Í DRASLI
og taka til... vá hvað það verður allt fínt hjá okkur! Þá er
nú kominn tími til að hringja í Völu og við komum
íINNLIT ÚTLIT,
en við þurfum svo að stækka við okkur því að það er annað
barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í
þáttinn ALLT UNDIR EINU
ÞAKI, seljum hana og kaupum stærri.
Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við
kallinn sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir
15 árum komnar í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir
sem á ekki neitt.. þannig að ég fer bara
íFólk með Sirrý
og væli yfir þessu öllu saman!
en þetta er nú samt pínu fyndið....en já kveð að sinni
K. Unnur L.